| Innanfélagsmót Karatefélags Reykjavíkur
1985 var haldið í Laugarnesskóla 21. desember. Þar voru mættir keppendur á
öllum aldri. Keppt var í kata barna, unglinga, fullorðinna og kumite
fullorðina. Í verðlaun voru veglegir
farandgripir sem nokkur fyrirtæki gáfu, fyrir utan hefðbundnar
metalíur. Fyrst var keppt í kata barna. Þar
voru margir líklegir sem æft höfðu undir Jónínu Olesen og Gests
Skarphéðinssonar. Sigurður Arnar Jónsson sló í gegn er hann steig fram
ákveðið og tilkynnti Taikyoku Jodan. Hann var greinilega mættur þarna
til þess að sigra sem hann og gerði. Í 2. sæti varð Unnar Snær og 3.
Bergþór. Allir keppendur sýndu ótrúlega leikni þótt ungir væru að árum
(7-12 ára). Í unglingaflokki voru menn ekki
síður ákveðnir og allir stefndu á sigur eins og vera ber. Eftir tvísýna
keppni varð Ragnar Logi hlutskarpastur en Davíð varð annar. Báðir sýndu
Taikyoku Kakeuke og Taikyoku Gedan. Örlygur varð þriðji.
Því næst var kata fullorðinna. Þar var Sigurjón
efstur með Gekisai en ýmsir sögðu að Halldór hefði ekki verið síðri
nema síður sé. Ólafur varð þriðji en hann stóð sig frábærlega vel á
mótinu.
Þá var komið að kumite. Þar gerðist ýnislegt óvænt.
Fyrst tókst Halldóri að tapa snemma en fyrirfram var hann álitinn einna
sigurstranglegastur. Hann var svo óheppinn að hann komst ekki einu
sinni í uppreisnarflokkinn.
Áður nefndur Ólafur var duglegur og notaði einfalda
tækni sem dugði vel. Hann varð þó að láta í minni pokann fyrir reyndari
keppenda en hann kom mest á óvart og hefði vel átt skilið
verðlaunasæti. Konráð varð í þriðja sæti e.t.v. vegna þess að hann var
rændur einu stigi af dómara en svo sögðu sumir. Í 2. sæti hafnaði Einar
eftir að hafa lumbrað á Sigurjóni eða var það öfugt? Sigurjón vann því
tvöfalt.
Ólafur fékk viðurkenningu fyrir áhrifaríkustu tækni á
mótinu, en ef velja hefði átt mann mótsins hefði það örugglega orðið
Sigurður Arnar.
Stefán Alfreðsson |
Úrslit: Kata
barna:
1. Sigurður Arnar Jónsson
2. Unnar Snær Bjarnason
3. Bergþór Jakobsson
Kata unglinga:
1. Ragnar Logi Magnason
2. Davíð Sigþórsson
3. Örlygur Jakobsson Smári
Kata fullorðinna:
1. Sigurjón Gunnsteinsson
2. Halldór Svavarsson
3. Ólafur Helgi Hreinsson
Kumite:
1. Sigurjón Gunnsteinsson
2. Einar B. Þorsteinsson
3. Konráð Stefánsson
|