![]() | Karatefélag Reykjavíkur |
| Sundlaugarhúsinu Laugardal, 104 Reykjavík, Sími: 553-5025 kfr@simnet.is | |
Merki I.O.G.K.F. Himin og jörð er lýst sem "kenkon" á Japönsku. "Ken" táknar himinn og "kon" táknar jörðina. Himininn er sýndur hringlaga og jörðin ferhyrnt, táknrænt fyrir stærð himins og jarðar. Himininn tengist mýkt og jörðin hörku. Merkið lýsir þannig samspili mýktar og hörku í náttúrunni - himinn og jörð. "Goju" tengist þannig merkinu beint því það þýðir hart og mjúkt - "go" þýðir hart og "ju" þýðir mjúkt. Ekki er lögð áhersla á nafn Chojun Miyagi þar sem hugmyndin að merkinu á að vera alþjóðleg. Hins vegar er rétt að benda á að merkið í miðju er fengið frá merki Miyagi fjölskyldunnar.
|