KFRKaratefélag Reykjavíkur
Sundlaugarhúsinu Laugardal, 104 Reykjavík, Sími: 553-5025 kfr@simnet.is

Fréttabréf K.F.R. 1982

Árið 1982 gaf KFR út ljósritað 10 síðna Fréttabréf K.F.R. Hér fyrir neðan eru myndir af blaðinu. Hægt er að smella á þær til að lesa hverja síðu fyrir sig.

Síða 1

Síða 2

Síða 3

Síða 4

Síða 5

Síða 6

Síða 7

Síða 8

Síða 9

Síða 10

Fyrsta Fréttabréf K.F.R. fékk frekar háðuglega umfjöllun um haustið í Kareteblaðinu sem gefið var út af Shotokan Karatefélaginu. Þar segir á bls. 21:

"Mikið gleðiefni var að heyra það nú í vor að KFR-menn hafi gefið út Fréttabréf sitt og mikil eftirvænting á ritstjórnarskrifstofum Karateblaðsins að sjá blaðið. En alltaf er jafn sorglegt að sjá þegar tilburðir í þá átt að efla íþrótt vora mistakast hrapalega. Kannski er blaði aðeins fyrir KFR-menn og væri gott ef þeir myndu reyna að halda því innan KFR (í guðana bænum). Ritsjórn KB er fús til að hjálpa til og gefa KFR-mönnum ráðleggingar við útgáfu næsta blaðs. Í fyrsta lagi.; Hafa blaðið annaðhvort 8 eða 12 síður ekki 10, því þá er ein síðan laus í.... í öðru lagi ekki ljósrita blaðið, og í þriðja lagi hefta blaðið saman því þegar það er aðeins 10 síður þá er mikil hætta á að fólk týni úr einhverjum hluta blaðsins. Auglýst er eftir nöfnum á blaðið.; hvernig lýst ykkur á.; "Bækl-ingurinn" (komið af "að vera Bæklaður")"

Þeir Karateblaðs-menn voru teknir á orðinu og næsta fréttabréf KFR fékk nafnið "Bæklingur-inn".

Eintakið er í eigu Reinharðs Reinharðssonar.