![]() | Karatefélag Reykjavíkur |
| Sundlaugarhúsinu Laugardal, 104 Reykjavík, Sími: 553-5025 kfr@simnet.is | |
|
Æfingabúðir á Selfossi 1982
Eitt fagurt föstudagskvöld hittust Shotokan félagar við Brautarholt 18 eða æfingastað S.K.F. og var ferðinni heitið til Selfoss á æfingabúðir með Goju-Ryu félögunum. Farið var á einkabílum. Þegar á staðinn kom fundu ekki allir svefnstaðinn, sem var gamall barnaskóli. Fannst hann svo eftir mikla leit um kl. 9.20. Voru þá þar fyrir strákar úr Karatefélagi Reykjavíkur og Stjörnunni, Garðabæ. Reyndar hafði einn bíll frá þeim farið framúr okkur á leiðinni, því sjálfsagt þurfa þeir alltaf að vera fyrstir. Hannes, sem er mikill maður, tók á móti oss, en hann sá um æfingabúðirnar á staðnum. Fyrsta æfingin var kl. 22.00. ekki voru allir hressir svona seint á föstudagskvöldi, en létu ekki mikið á því bera. Árni hafði ágætis æfingar það kvöld, sem mestmegnis voru byggðar á basic. Þegar heim var komið hélt, "Pabbi" (Hannes) smá fund og sagði m.a. á honum: Kyrrð kl. 1.00. (Um kl. 1.00 voru nokkrir strákar úr Gerplu að ergja "Pabba" með vasaljósi og kjaftagangi, en að lokum hafði "Pabbi" vinninginn yfir börnunum sínum). Ræst var kl. 8.30. Var þá borðaður morgunverður í mötuneyri íþróttamiðstöðvarinnar. Okkur var nú holað bak við aðalstaðinn þar sem jarðarför og erfidrykkja átti að vera um daginn. Í staðinn var sagt að við fengjum afganginn að snittunum sem eftir yrðu. Það varð enginn afgangur. Hörku æfinga hjá Karli Gauta var eftir matinn. Var þá fyrst farið var í basic og síðan sýndu stílarnir sínar undirstöðu kötur. Er óhætt að segja að það hafi verið góð reynsla fyrir flesta, því ekki vissu allir Shotokanmenn til hvers svona mikil er í kata hjá Goju-Ryu. Borðað var síðan kl. 12.00 og eftir matinn farið í sund og slappað af. Svo aftur kl. 16.00 hafði Árni góða æfingu sem byggði á skemmtilegum kumite æfingum. Á æfingunni var líka farið betur í köturnar sem kenndar höfðu verið um morguninn. Um kvöldið var síðan vídeósýning. Var þarð tómt vandræðaástand fyrst til að byrja með, en það var bætt upp með öli. Ekki veitti af, því myndirnar sem sýndar voru voru afburðarlélegar Kung-fu myndir. Grislingarnir steinsofnuðu strax um eitt-leitið vegna ofþreytu, og þurfti "Pabbi" ekki að hafa áhyggjur af þeim það kvöldið. Morguninn eftir var dagskáin með sama móti og var síðan brennt í bæinn um 3.00 leitið á sunnudag. Það er óhætt að segja að þetta hafði verið fyrirmyndar æfingabúðir og eiga forsvarsmenn hennar hrós skilið. Þórður Antonsson. Birtist í Karateblaðinu, október 1982.
|