KFRKaratefélag Reykjavíkur
Sundlaugarhúsinu Laugardal, 104 Reykjavík, Sími: 553-5025 kfr@simnet.is

Æfingabúðir í Mürren, Sviss 1988.

Fimm íslendingar fóru á æfingabúðir Evrópusambands Goju-Kai sem voru haldnar í bænum Mürren (1650 m) í Svissnesku Ölpunum dagana 3.-9. júlí. Ekki er hægt að aka til bæjarins heldur varð að skilja bílinn eftir í botni dalsins og taka kláf upp í bæinn. Farastjóri í ferðinni var Jónína Olesen, 1. dan, og tók hún þátt í fundum yfirkennara landanna fyrir Íslands hönd. Aðrir í ferðinn voru Konráð Stefánsson, Reinharð Reinharðsson, Einar Gröndal frá KFR og Hannes Hilmarson frá Stjörnunni.
Æft var undir stjórn bestu kennara sem völ er á, þeim Shihan Goshi Yamaguchi, Shihan Hiromasa Kikuchi, Shihan Ingo de Jong og Yokyo Walter Zeeholzer. Einnig voru til aðstoðar margir kennarar 3. og 4. dan. Æft var í þremur hópum, 9. - 5. kyu, 4. kyu - 1. dan og 2. - 6. dan. Æfingarnar voru 3 til 4 á dag og stóðu yfir frá sjö á morgni til sex að kvöldi, venjulega tvær að morgni og tvær seinnipartinn. Á morgnana var þoka í bænum því skýin komu niður í bæ á nóttunni.
Einn eftirmiðdaginn var boðið upp á útsýnisferð á topp Schilthorn (2970 m) á veitingastaðinn "Piz Gloria" þar sem ein James Bond myndin var tekin. Farið var í kláf í gegnum skýin til að ná á toppinn.
Mjög góð aðstaða var fyrir alla í bænum því í honum hefur verið byggð upp íþróttamiðstöð, með stórum og litlum sal, sundlaug með nuddpotti og gufubaði, miklu og góðu gistirými og góðu mötuneyti þar sem þeir sem vildu gátu fengið grænmetisfæði!
Á æfingunum var farið í Goju-stílinn og voru æfingarnar í samræmi við það, kihon, kihon-ido, kihon samæfing, kata, shitei-kata, bunkai, kata sanchin og kata tensho, kumite og keppnis-kumite.
Síðasta daginn var síðan dan gráðun og náðu tveir karateiðkendur sem eru íslendingum að góðu kunnir gráðun. Conny Ferm er nú 4. dan og Marika Strömberg er 3. dan.
Búðunum lauk með sýningu þar sem Goshi Shihan sýndi kata, Shihan Ingo de Jong sýndi kumite með aðstoð Carl, 1. dan frá Svíþjóð, Kikuchi Shihan og Walter Zeeholzer sýndu Tai Chi og átta krakkar frá Japan (1.dan og 1. kyu) sýndu kata. Þótti sýningin takast stórkostlega.

Jónína, Konráð og Hannes á leið í kláfinn til Mürren.

Á leið í morgunmat í þokunni.

Einar Gröndal og Hannes Hilmarsson

Piz Gloria á toppi Schilthorn (2970 m)

Jónína, Reinharð, Hannes, Einar og Konni bíða eftir matnum.

Shihan Ingo de Jong á toppi Schilthorn.

Conny Ferm og Marika Stömberg að gera kata.

Marika Stömberg og Jónína að gera bunkai.

Íslendingarnir með Shihan Hiromasa Kikuchi, Shihan Goshi Yamaguchi og Shihan Ingo de Jong

Japönsku krakkarnir settu svip á búðirnar.

Að sýna kata seiunchin.

Að ljúka sýningu á kata seiunchin.

Shihan Goshi Yamaguchi að gera kata.

Shihan Goshi Yamaguchi að gera kata.

Reinharð Reinharðsson